|
Forsíða Uppfært 29.08.09 |
Flagbjarnarholt efra - fas, fegurð og fjölbreytni |
|
|
Kæru gestir, velkomin á vefsíðuna okkar.
Á bakvið hrossaræktunarbúið er stór og samheldin fjölskylda sem hefur brennandi áhuga á íslenska hestinum og eru nú á búinu þrjár 1.verðlauna hryssur. Einnig á fjölskyldan einn hluti í 1.verðlauna stóðhestinum Kjarna frá Þjóðólfshaga. Við skötuhjúin erum mikið áhugafólk um íslenska hestinn. Birta er alin upp í sveit og hefur verið í hestum frá því hún man eftir sér bæði í leik og starfi. Pétur hefur líka verið mikið i hestum þó svo hann hafi ekki byrjað í þeim fyrr en um fermingu og er hans aðaláhugamál hrossarækt. Í gegnum þetta hestabrölt okkar höfum við kynnst mikið af ólíkum hestum bæði heima og erlendis og teljum við okkur það til mikilla hagsbóta í ræktuninni, ásamt góðum skammti af sköpunargleði, metnaði, þolinmæði og víðsýni. Í gegnum árin hafa margir ólíkir gæðingar hrifið okkur og veitt okkur innblástur og því miðast okkar ræktunarmarkmið við það að móta okkar eigin draumahest, óháðan ræktunarlínum og trúarbrögðum. “Fyrir mér er lífið ekki dauf týra heldur ljómandi kyndill sem ég held á loft um þessar mundir og vil að logi eins skært og unnt er áður en ég rétti hann komandi kynslóðum” George Bernard Shaw Bestu kveðjur, Pétur og Birta.
|
||