|
Fréttir
Uppfært 29.08.09 |
Flagbjarnarholt efra - fas, fegurð og fjölbreytni |
|
|
03.10.09
Ný heimasíða. Jæja núna er nýja heimasíðan okkar www.flagvelta.is að verða að veruleika og viljum við vísa fólki þangað. Flagbjarnarholt.is er því að ljúka sinni lífstíð hér á alheimsnetinu og mun flagvelta.is taka við fréttaflutningi af hrossarækt og hestamennsku litlu fjölskyldunnar í Grindavík í framtíðinni. Síðan er ekki komin á ensku ennþá en verið er að vinna í því eins og öðru.
29.08.09
Eyþór frá Feti. Haustið 2004 keypti Svenni folald frá Feti í 50 ára afmælisgjöf til foreldra sinna. Folinn heitir Eyþór og var sýndur núna þann 17. ágúst á Gaddstaðaflötum í 8.08 þar af 8,24 fyrir byggingu og 7,98 fyrir hæfileika. Þið getið séð frekari upplýsingar undir stóðhestar. Eyþór er albróðir Surtseyjar frá Feti sem margir muna eftir, hann er skemmtilegur fjórgangshestur og alveg einstaklegar ljúfur í skapi, hálslangur og háfættur.
18.08.09
Merarnar að týnast heim. Jæja núna eru merarnar að tínast heim frá stóðhestum sumarsins. Við Pétur höfum alltaf verið heppin með fyljun og núna eru komnar heim fylfullar fjórar af þeim fimm hryssum sem við héldum í sumar. Gjósta fór undir Krák frá Blesastöðum og er komin heim með staðfest fyl. Við vorum bæði mjög hrifin af honum þegar hann var sýndur á Landsmótinu 2006. Enda frábær yfirferðarhestur með mikla útgeislun. Svo eftir frábæran árangur afkvæma hans sem sýnd voru í vor ákváðum við nú að koma okkur af stað með almennilega meri undir hann. Við erum því að vonum ánægð með að fá Gjóstu heim fylfulla.
Tromma og Hnáta eru komnar heim fylfullar við Sæfara frá Hákoti og Hera var svo sótt um síðustu helgi með eldgamalt fyl við Mjölni frá Hlemmiskeiði. Alveg gullfallegum Kráksyni sem var að gera góða hluti á kynbótabrautinni í vor og gaman verður að fylgjast með á næsta ári.
Allir þeir sem sáu um merarnar okkar stóðu
sig með stakri prýði og skemmtilegt að finna það Kolfinna er ein eftir af okkar merum, enda svo nýlega farin til Ljóna frá Ketilsstöðum að hún hefur ekki verið sónuð enþá. Surtsey hans Svenna er líka komin heim fylfull við Oliver frá Kvistum en Gyðja er en hjá honum. Harpa er líka enn hjá Vilmundi frá Feti og hefur ekki verið staðfest í þeim fyl að svo stöddu. Myndirnar eru af Mjölni frá Hlemmiskeiði önnur tekin við hesthúsið á Blesastöðum og hin af Jens Einarssyni á kynbótabrautinni í vor.
05.08.09
Síðustu folöldin í sumar.
Þá eru síðustu folöldin komin. Fyrst kom
Hrafna frá Flagbjarnarholti undan Hörpu frá Flagbjarnarholti og Vilmundi
frá Feti. Mjög falleg meri með mjög skemmtilegar hreyfingar á tölti og
brokki. Rúm og geðug. Síðastur kom svo Gustur frá Flagbjarnarholti undan
Skák frá Flagbjarnarholti og þeim gráa, Kraflari frá Ketilsstöðum. Hann
kom á óvart er hágengur og mjúkur með gormahreyfingu. Eigandinn hann
Ólafur Jóhann var að vonum ánægður en liturinn setti hann í vanda með
nafnaval því hann var búinn að ákveða að skíra folaldið Rauðmaga ef það
kæmi rauðskjóttur hestur og einhver var að stríða honum á að ef það kæmi
grá meri þá ætti hún að heita Grásleppa. Eftir þó nokkra umhugsun valdi
hann nafnið Gustur
Myndin á forsíðunni er af mér að kíkja yfir hagana í Flagbjarnarholti. Þið getið séð fleiri myndir frá sumrinu hér
14.07.09
Hestaferð. Um helgina var farið í hestaferð um suðurlandsundirlendið með stórum og skemmtilegum hóp. Þessi hópur er búin að fara saman í nokkur ár núna og er alltaf að stækka. Í þetta skipti voru 74 hross og rúmlega 30 mans með trússurum og öllum þegar flest var á Laugardeginum. Við Pétur komum með okkar hesta inní á Laugardeginum og riðum til enda á Sunnudeginum um 80 km en þeir sem riðu allan tíman riðu rúmlega 100 km allt í allt. Við skiptumst á að vera í bílnum og fengum líka hesta lánaða inn á milli. Tromma og Víðir stóðu sig með stakri prýði og gaman að kynnast þeim við þessar aðstæður líka. Víðir fór svo í sveitina eftir ferðina en Tromma undir hest. Sem var ekki alveg planið, en ástæðan var góð. Þar varð Sæfari frá Hákoti fyrir valinu. Við höldum undir hann tveim merum áður en hann fer út. Sem ég verð nú að segja að er mikil synd. Ég var svo lánsöm að frumtemja móðir hans Frá frá Hákoti og er hún mér ógleymanleg. Enda fá tryppi sem maður fer á bak á um ævina og þarf ekkert að temja því það er eins og þau hafi bara einfaldlega fæðst með mann á bakinu. Þið getið séð fleiri myndir úr ferðinni undir myndir.
09.07.09
Tromma frá Flagbjarnarholti Þessi 5. vetra meri er undan Ösp frá Enni Otursdóttur og Fána frá Kálfholti sem er undan Asa frá Kálfholti. Ég hef verið að þjálfa hana í vetur en það var ekki fyrr en hún kom á grænu grösin í Grindavíkinni sem henni fór að fara fram. Núna er hún að verða hið skemmtilegast reiðhross enda búin að fara eina stutta hestaferð upp á Vigdísarvelli og núna um helgina á að fara aðra aðeins lengri um Suðurlandsundirlendið.
20.06.09
Sindri frá Flagbjarnarholti Hnáta Mánadóttirin mín er köstuð. Þar kom jarpur hestur sem fékk nafnið Sindri eftir gamla uppáhaldshestinum mínum úr æsku. Sindri var bara tæplega tveggja daga gamall þegar þessar myndir voru teknar. Hann var en óstyrkur á fótunum en samt gaman að sjá hvað hann er reisulegur og fínlegur. Sindri fer á öllum gangi og það skín af honum geðprýðin. Það verður gaman að sjá hann aftur seinna í sumar þegar Hnáta kemur frá hesti og hann verður búin að bæta á sig vöðvum og getur beit sér betur á gangi.
15.06.09
Hátíð frá Flagbjarnarholti. Hera frá Götu Óðsdóttirin okkar kastað líka í síðustu viku jarpri meri undan Natan frá Ketilstöðum. Sú stutta fer mest á skeið bæði hratt og hægt. Það er mikil afturfótahreyfing í henni og hún lyftir líka framfótunum heilmikið. Eitt er víst að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af vekurðinni enda stand að henni mikil fimmgangshross beggja vegna og fyrsta að nefna þá Kolfinn frá Kjarnholtum og Óð frá Brún.Við erum ánægð með Hátíð og gaman verður að fylgjast með hvernig hún þróast í framtíðinni.
Skuggi frá Flagbjarnarholti. Pétur minn fékk flottan brúnan hest undan Kolfinnu, Kolfinnsdótturinni okkar og Mídasi frá Kaldbak. Hann er þrælmyndarlegur, stekkur hátt og sýnir gang með hárri fótahreyfingu. Einnig kom skemmtilega á óvart mikill liðleiki og teygja í honum. Pétur var búinn að óska sér meri enda hrifinn af Mídasi en fékk hana ekki í þetta sinn. Hvað sem því líður þá verður hann ekki svikinn af Skugga sem framtíðar reið og keppnishesti.
04.06.09
Austri frá Flagbjarnarholti. Svenni fékk þetta myndar hestfolald í síðustu viku. Hann fékk að heita Austri og er undan Surtsey frá Feti og Þóroddi frá Þóroddstöðum. Hann sýnir allan gang er reistur og viljalegur. Hann er samt líkt og móðir sín ótrúlega skemmtilega yfirvegaður og kippti sér ekki mikið upp við það, þó Svenni skellti sér á bak Surtsey berbakt og beislislaust.
31.05.09
Gersemi frá Flagbjarnarholti Hérna eru nokkrar myndir af Gaumsdótturinni okkar sem teknar voru í blíðskapaveðri í gær. Merin fékk að heita Tign og erum við mjög ánægð með hana. Hún fer mest um á valhoppi og brokki með mikilli hreyfingu. Svo við fyrstu sýn virðist hún vera stórmyndarleg fjórgangstýpa.
29.05.09
Ég á afmæli í dag.... og ég fékk svarta meri með stjörnu undan Gjóstu og Gaum frá Auðholtshjáleigu. Reyndar þá kom hún á Þriðjudagsnóttina síðust og við ætlum austur á morgun að skoða hana. Surtsey hans Svenna er líka köstuð svörtum hesti undan Þóroddi svo það verður gaman að fara í sveitina á morgun með myndavélina.
Myndirnar eru af Ramm frá Flagbjarnarholti. Hann er þriggja vetra stóðhestur undan Kengálu frá Steinnesi og Víði frá Prestbakka. Rammur var tekinn inn um daginn til að skoða hann. Við erum ánægð með hann enda skemmtilegur alhliðagengur foli. Karakterinn lifandi og skynsamur svona eins og ég vil hafa unghrossin í umgengni.
16.05.09
Sauðburður í Grindavík. Það er ekki bara í sveitum landsins sem sauðburður er í fullum gangi. I Grindavík er blómleg fjárrækt og mikið um að vera þessa dagana í sauðburði. Við fórum í heimsókn til Dóra kunningja okkar sem er með 16 kindur á húsi. Þar var í nógu að snúast meira en helmingur borinn og mikill jarmkór sem tók á móti okkur. Strákarnir fengu að hjálpa til við að reka inn hópinn. Svo voru lömbin hans Dóra sem eru á mismunandi aldri og í öllum litum skoðuð.
| ||